Milljón er ansi mikið. Það er mjög erfitt að segja hvað er rétt verð. Framboð af þessum bílum er (að ég held) ekki mikið, og eftirspurnin er heldur ekki mikil en hef samt grun um (m.v. fyrirspurnir á www.kvartmila.is, er þetta nokkuð bíllinn sem er auglýstur þar?) að eftirspurnin sé meiri en framboðið. En til að átta sig á bílnum þarf betri upplýsingar um bílinn:
1) Hvaða vél, 400 pontiac, 403 olds, 350 sbc, 400 sbc, 455, 454 eða eitthvað annað (segir manni lítið að gefa upp einhverja áætlaða hestaaflatölu). Hvaða knastás, hedd, þjappa, uppgerð, nýjir/gamlir hlutir, millihedd, blöndungur, aðrar breytingar/bætingar.
2) Afturhásing (10 eða 12 bolti, 9“), hlutföll, læsing, upptekin
3) Skipting, væntanlega TH400 en gæti verið TH350, jafnvel beinskiptur (ólíklegt).
4) hefur hann rúllað brautina? Hvaða tími?
Ef bíllinn væri með uppgerða 455 eða 454, GM 12 bolta/9”Ford, TH400, 3,5X hlutföll, læsingar og góð dekk, gott lakk, heilan T-topp, góður að innan, já þá gæti hann verið virði einnar milljónar (að mínu mati, væri örugglega dýrara að flytja hann inn), en það er samt mjög ólíklegt að hann finni kaupanda sem er tilbúin að gefa honum milljón fyrir hann.
Aðal spurningin er, finnst þér hann vera þess virði? Passaðu þig bara á einu, þegar maður kaupir sér svona bíl þá má maður búast við að tapa á því að selja hann, og það borgar sig eiginlega ekki að standa í þessu ef maður ætlar bara að eiga hann í eitt eða tvö ár.
JHG
P.s. svona bílar eyða ekki bensíni, þeir nota það (og eru snöggir að því).