Ég á sams konar árgerð af Corollu ´88-92 nema bara að það er XL með 1300cc vél. Ég verð að segja að ég hef nokkuð góða reynslu af þessum bílum en það er náttúrulega líklegt að GTI bílunum sé keyrt mun verr og ég myndi pottþétt láta skoða hann og athuga gírskiptinguna áður en að ég myndi kaupa hann. Einnig hef ég heyrt að það hafi verið settur einhver tilraunablöndungur í þessa árgerð sem að var síðan hætt að nota vegna þess að þeir voru frekar lélegir.
Ef að það er ekkert alvarlegt að bílnum þá myndi ég skella mér á hann þar sem þetta eru helvíti góðir bílar miðað við verð og eyðslu.
“If everything seems under control, you're just not going fast enough.”