Ég hef ekki skoðað umræddan bíl en flestir eru nú búnir að auka aflið eitthvað í þessum bílum.
Það að auka þjöppuna, setja á hana blöndung (t.d. góðann Holley :), heitari knastás og að sjálfsögðu flækjur getur lífgað þennan mótor við. Ef menn vilja halda sig við innspítingu þá myndi ég mæla með nýju innspítingunni frá Holley, Stealth fire, hún er að gera allt vitlaust út í ameríkunni núna :)
Nú má vel vera að það sé þegar búið að gera eitthvað af þessum hlutum við bílinn.
Cross Fire innspítingin (sem Chevy menn kalla Cease Fire) hefur ekki verið þekkt fyrir mikið afl en hún var nú bara tilraun (sem var síðan leyst af með TPI), en samt hafa nú menn verið að gera ágæta hluti með hana í USA.
En það skiptir ekki öllu, óviðjafnanlegt að líða um á Vettu :)
JHG