Ég myndi nú ekki mæla með því, en ef þú gerir þetta þá ætla ég að biðja þig um að keyra ekki framhjá heimili mínu, sérstaklega ekki á nóttunni ;)
Hávaðinn verður hrikalega mikill og hljóðið verður leiðinlegt (minnir ekki á kraft heldur bilað púst). Ég hef svo grun um að þú fengir ekki skoðun á bílinn þar sem að ég held að það sé skilyrði að vera með hljóðkút. Þú getur fengið þér túrbokút sem er beinn í gegn en dempar hljóðið eitthvað og ert þar að leiðandi löglegur.
Það má vera að þú finnir einhver hestöfl (samt ekki mörg) á háum snúning en þú tapar að öllum líkindum torki á lágum snúning.
Ef þú villt fá bíl með flottu hljóði, fáðu þér þá V8 :)
JHG