það fer auðvitað alveg eftir ástandi bílsins.
ég ek sjálfur um á galloper og er mjög sáttur við hann. þó þetta sé langt frá því að vera það aflmesta og besta sem þú getur funndið á markaðnum, þá þarf líka að horfa á notagildi og hvað þú vilt eiða í þetta.
ef þú færð bílinn ódýrt þá má vel henda auka aur í að gera hann góðann, en ef er rukkað fullt verð að þá þarf hann líka að vera í top standi.
ég fékk minn mjög ódýrt með því að ég tæki við honum eins og hann væri. á ónýtum dekkjum, nokkrum dögum frá því að falla á skoðun og farið að styttast í tímareim. svo þyrfti hellst að skipta um startkrans.
óþarfi um minn bíl. (ég átti dekk þannig að það var enginn kostnaður.
skipta um 2 perur og herða á hjólalegu, rann í gegnum skoðun.
við feðgar skiptum um tímareim og var sá kostnaður ca. 45 þús.
það fór í honum startarinn, reddað á næstu partasölu.
af furðulegum ástæðum að þá brotnaði vippuarmurinn í mótornum, en það var ekkert mál, fékkst á partasölu ódýrt.
verslaður krans (á eftir að skipta) fékkst á slikk á partasölu.)
ég held að heildar kostnaður við alla varahluti og allt í bílinn (utan við vinnu) sé innan við 100þús.
þannig að í heildina á litið, þetta er eins langt frá því og þú kemmst með að fá einhverja spyrnugræju, mótorinn er latur en þekktur fyrir að toga. hann er rúmgóður að innan 7 manna, og gott að ferðast í þessu. fjöðrun mætti vera betri en dugar. það er MJÖG auðvelt að fá varahluti í þessa bíla og merkilega ódýrir. eyðsla er frekar mikil, hef reyndar ekki mælt hana nákvæmlega.
mitt álit er að ef þetta er sæmilega vel með farið, smurt reglulega, skipt um tímareim á réttum tíma, beinskipt (skilst að ssk sé rusl í þessu, en ég þekki það ekki af reynslu), að þá eru þetta fínir bílar.
hann hentar mér persónulega mjög vel, með konu barn og hund, og nóg pláss fyrir alla plús farangur.
svo er bara í hvað ætlaru að nota hann, og hverjar eru þínar kröfur til bílsins sem þú ætlar að fá þér. einn bíll hentar þessum en annar hinum.
menn koma oft með eins og þetta foreldrar vinar minns bíllinn þeirra er svona, ok það er þeirra eintak óheppin þau. menn geta komið með svona komment um alla bíla alveg sama hvað tegund það er.
einfalt ef er farið vel með þetta, þá endist þetta og bilar ekkert meira en hvað annað. (og þú ert margfalt betur settur með að kaupa varahluti í þetta en t.d. land cruiser, allavega peningalega séð.)
svona í endann þá ætla ég að afsaka langt svar, og smá útúrdúra hér og þar.
ef þú hefur einhverjar spurningar sendu mér þá bara skilaboð. (skoða sjaldan hérna)