Ég er að fara í það á fimmtudaginn og er nokkuð viss um að aksturinn sé 40-45 min og munnlega svona 5-10 min í mesta lagi.
Bætt við 19. febrúar 2010 - 18:10
Tók bara 2 min í munnlega, valdi eitthvað spjald og þurfti að útskýra hvernig maður skiptir um dekk, setur háu ljósin á og nokkra takka í miðstöðinni. Líka hvar maður setur öryggisþríhyrninginn. Svo keyrðum við bara af stað, gekk reyndar ekki vel í byrjuninn, drap á þegar ég var að fara af stað og svo þegar ég var að fara inná soldið virkt hringtorg, smá stress í gangi. Svo gekk þetta bara vel eftir það, fékk 6 villur held ég :)
Verklega var u.þ.b 25 min