Ahh micra, fyrsti bílinn minn var Nissan Micra (gylt) og endist mér í þónokkur ár get ég nú sagt þér. Fannst það alls ekkert dýrt að gera við hana (hafði nú engan samanburð) en alls ekki fá þér sjálfskipta því ég hef heyrt að það er eintómt vesen að redda hlutum í sjálfskiptinuna og eitthvað rugl…
Annars fínir bílar sem eyða litlu, enn ef maður lendir í árekstri þá er þetta ekki beint öruggustu bílarnir…..
Ég keypti minn bíl þegar hann var keyrður 119þús árg 97 á 250þús kr, og hann endist mér í 4-5ár held ég áður en ég týmdi ekki að laga hann en þá var hann keyrðu 165þús. (það hefði kostað yfir 100þús að laga hann og innifalið í því var að flytja bílinn í bæinn þar sem han bilaði lengst út í rassgati!)
Annars fann ég engar sniðugar Micrur þegar ég var að leita mér að nýjum bíl, endaði með að kaupa Olivíu græna Renault Megan Scenic :P