Myndi nú ekki setja WD-40 ofan í rifuna sem rúðan fer ofan í. Getur rétt ýmindað þér hvernig það er að ná feiti eða olíu eins og WD-40 af rúðu.
Spurning hvort það ískri í upphalaranum, mótornum eða sleikjulistanum sem rúðan strýkst með þegar hún fer upp og niður. Oft nóg að setja svertuefni eða sílíkon á sleikjulistann.
Sleikjulistinn er gúmmíið sem er neðst við rúðuna. Það sem rúðan nuddast við þegar skrúfað er upp og niður (hefur eflaust einhverntímann nýtt þér sleikjulistann til að taka burtu móðu eða mikla rigningu af glugganum þínum)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..