Ég get bara ekki annað en póstað þessu inn… Ætti að sleppa því og halda bara kjafti en…

Vegna smá bílaspjalls á netinu fór ég og gerði leit á mobile.de eftir BMW M5.

Ég fann bílinn sem passaði eftir smá leit: BMW M5 3.8 ‘94, ekinn undir 100þ. km og sett á hann ca. milljón kall ísl. Gróflega áætlað verð til landsins eitthvað yfir tvær millur. Er ég að rugla, er ég að missa vit?

Þetta hlýtur að vera bargain aldarinnar (þetta var ekki ódýrasti bíllinn bara einn sem mér leist vel á!)

Allavega að fá 340hö handsmíðaðan übersaloon fyrir minni pening en nýjan Ford Mondeo eða miklu minni pening en t.d. Civic Type R eða Impreza WRX sló mig rækilega. Ég þyrfti að borga meira fyrir ’87 Porsche 911 Carrera! Ég veit bara að mig vantar 2 milljónir sem snöggvast…

Linkur dauðans (á viðkomandi bíl):
http://uk.mobile.de/cgi-bin/search.pl?CountOff=272&DataNr=72&DisplayDetail=24685635&DoSearch=1&FormCategory=0&FormColor=%2e%2e%2ebeliebig&FormDate=0&FormEZ=%2d&FormKilometer=%2d&FormLand=D&FormMake=5&FormModel=M5&FormPlace=%2d&FormPower=%2d&FormPrice=%2d&FormSort=0&Page=1&SearchCat=bereich%3dpkw%26sprache%3d2&bereich=pkw&sprache=2&x=46&y=8<br><br>Who died and made you Elvis? - Cordelia