Ég þekki ekki leikinn en las einu sinni grein eftir mann í einhverju bílablaði sem er svo heppin að eiga Porsche 959.
Ein góð saga sagði frá því þegar hann ætlaði að fara og kaupa sér aukafelgur undir bílinn til að setja slikka á svo hann gæti notað hann á “track days”. Nema hvað hann hætti snarlega við þegar hann komst að því að felgurnar köstuðu tvær milljónir og dekkin langleiðina í milljón. Dýr gangurinn þar.
Þessir bílar kosta óhemju og eru aðeins á færi safnara eða mjög auðugra manna, ef þeir fyrirfinnast þá á annað borð til sölu.
T.d. þá skilst mér að Bill Gates nokkur eigi fjögur stykki sem hafi verið flutt inn sem sýningareintök og má ekki keyra í USA.
Algengt verð er milljón dollarar. Þeir ódýrustu eru á 600 þúsund dollara.
Hér eru flottar myndir og forvitnilegar upplýsingar um vanda þeirra í USA:
http://erntheburn.tripod.com/autos/959/95911.htm