www.bilasolur.is þar í ítarleg leit læturu inn eftirfarandi upplýsingar um það sem þú ert að leita að -> BMW, afturhjóladrif, verð frá 800-1.5 mill og með myndum að sjálfsögðu. Þá ættirðu að fá upp lista yfir fullt af töffarabílum EN það sem þú ættir helst að kíkja á eru BMW 540IA árgerð 1995 og uppúr svo geturðu verið grand á því og skoðað BMW sjöurnar árgerð alveg niður í sirka 1992.
Veit t.d. um einn 540IA sem fæst á 300 þúsund kr út og yfirtaka á láni sem er 690 þúsund kall. alls 990 þúsund sem er alls ekki mikill peningur fyrir bílinn sem þú munt fá :P
Svo veit ég um alla vega 3 stk Benz E500 árgerð 91-94 sem fara þó á aðeins hærra verði en þú ert að nefna. En það eru sko alvöru töffarabílar.
alvöru krúserar en eru þó heilmikill fjárfesting. þyrftir að hafa tíma og stórt veski til að halda þeim við skyldi eitthvað klikka : )
Guð elskar þig,- en Djöfullin elskar þig meira