Já ég er búin að vera að skoða þessa bíla á bilasolur.is og mér brá bara frekar mikið :s Afhverju eru þessir bílar svona dýrir? Ég einmitt hélt að þessir bílar væru ódýrir.
Ekki hugmynd, finnst þeir forljótir, aðallega að innan samt. Hef heyrt að þeir séu mjög fínir í akstri samt. Annars hugsa ég að þetta sé að hluta til bara “merkjavara” :P
Jájá ég er búin að finna heilan haug af flottum ef ekki betri bílum heldur en Cooperinn. Fékk bara eitthvað svona skyndi æði fyrir honum og ákvað að tjékka bara á honum. Ég hef heldur ekki efni á 3 milljóna króna bíl, þó ég hafi fundið einn á 1,5 eflaust tjónabíll en what ever :)
En hvað með þessa Mini one? Þeir eru alveg eins og Cooper er það ekki? minni bara eða ?
Tískubílar,, ágætis bílar svosem en alltof dýrir. Liggja vel og S týpan virkar ágætlega. Ef ég væri að leita mér að sportlegum smábíl,, eða smábíl yfir höfuð, fengi ég mér ekki Mini. En þeir sem eiga svona virðast vera ágætlega hressir með þá.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..