S2000 á að vera með einni bestu 4 cyl vél allra tíma og á að vera alveg brilliant akstursbíll,
finnst hann ekki beint samkeppnishæfur við RX8 enda frekar ólíkir bílar, S2000 er 2ja manna blæja en RX8 er 4 manna coupe.
Ef ég ætti að velja á milli myndi ég velja Rx8 ef þetta væri eini bíllinn minn, þar sem hann er praktískari þar sem hann rúmar 4
og er meira að segja 4 dyra (þó svo að afturdyrnar séu ekki “full size”).
En ef ég hefði aðgang að öðrum bíl og þyrfti ekki fleiri en 2 sæti þá myndi ég hiklaust velja S2000,
þar sem hann er aflmeiri, léttari og á að höndla betur en RX8,
en get ekki staðfest það þar sem ég hef ekki ekið S2000.