Kannski er maður í seinna lagi að svara þessum þræði. Ég á líklegast flottasta E420 bíl landsins.
http://www.simnet.is/hlynzi/benz/(myndir á þessari síðu, ein að flækjast með af 230E bíl á sömu felgum)
Þetta er einn vandaðasti fólksbíll sem hefur nokkurntímann verið hægt að kaupa, ég er búinn að vera á þessu í 1 og hálft ár, bíllinn hefur aldrei svo mikið sem bilað.
Krafturinn í honum er bara góð skemmtun og þetta er ekkert slor, hann er með öllum útbúnaði.
Hann fer bráðum að fara á sölu (ég ætla að uppfæra), það þykir ekki ólíklegt að í næsta mánuði fari AMG kitt á hann, og hugsanlega heilsprautun í kjölfarið.