Ég hef aldrei átt bjöllu sjálfur en ef þú talar við einhvern sem átti svoleiðis back in the day (og mjög margir 40 ára plús hafa átt bjöllu) þá munu allir segja þér að það er einstaklega auðvelt að vinna við þennann bíl. Sérstaklega þegar kemur að vélinni. Þeir voru og eru víst mjög fínir og áreiðanlegir. Einfaldir og góðir bílar sem eru meira að segja frábærir í snjó :) Það eina sem víst virkilegt challenge við hann er ef hann er dældaður og þú ætlar að spasla.. Það er víst erfitt sökum þess að hann er svona rúnaður allur.
Allavega, gangi þér vel með bjölluna ef þú slærð til.