Nú virðist Hugi loksins vaknaður eftir sumardvala. Bílaáhugamálið hefur tekið kipp nú undanfarið sem gleður mig ósegjanlega og fleiri innskráðir einmitt þegar þetta er skrifað en sást lengi vel. Mörg nöfnin eru líka kunnugleg sem er ánægjulegt en það eru einhver ný andlit, ég vona að þau komi aftur og aftur.
Ég vona að áhugamálið verði aftur jafn lifandi og skemmtilegt og það var síðasta hluta vetrar.
Kveðjur,
Mal3