Þó ég viti ekki mikið um smáatriði þá er þetta lúxuskerra útroðin af sterum. Ef eintakið er gott þá er þetta örugglega mjög skemmtileg útgerð og miðað við það sem ég hef heyrt þá ætti eyðslan að vera í kringum 18 í bæjarakstri (sem er í sjálfur sér ekki mikið fyrir þennan bíl).
Vandamálin byrja ef eintakið er ekki gott (á í raun við flesta bíla). Varahlutir eru ekki þeir ódýrustu þó þú gætir kannski náð því eitthvað niður með að versla sjálfur á ebay.
Líklegast færðu nákvæmustu upplýsingarnar með því að spyrjast fyrir á www.bmwkraftur.is en þar eru dellukarlar sem hafa ýmist átt eða eiga svona vagna, og geta frætt þig betur um hann.
JHG