…Tja við vinur minn lentum í því að það var keyrt aftan á okkur bara rétt við lögreglustöðina hjá hlemm.
Vinur minn hljóp inn að sækja lögguna…var þá einn snápurinn þarna við borðið og auðsýnilega nennti ekki út, var bara með skæting og sagði honum að hringja í 112.
við nátturulega for undrandi yfir þessu hringdum í 112 (því þetta var bílaleigu bíll sem blessaður indverjinn sem bombaði aftan á okkur var á þarf lögreglu til að gera skýrslu)
það leið svona korter þar til loks kom einn afar, afar önugur lögreglumaður tölti á svæðið og gekk frá þessu og ekkert spáði hann í ástandi ökumanna kláraði sitt bara og fór…