Það er nú þannig með þessa leiki að við og við verður maður að taka hlé frá því að vinna nýjar keppnir til þess að safna fyrir nýjum og dýrum bílum og breytingum á þeim. Hvaða aðferðir notið þið?
Ég fer í Costa di Amalfi rallið (minnir mig að það heiti) í easy mode og vinn báðar keppnir. 2 hringir í hvorri keppni, 5000 kall fyrir hvora og vinningur er Toyota sem landar 265000 credits.
Alls 275K fyrir 2 keppnir, veit einhver um betri aðferð?