Ég þekki nú þennan bíl bara af eigin reynslu og bæði ég og vinur minn höfum bara gott um þessa bíla að segja.
Bíllinn hans bilaði aldrei og þó að þessir bílar hafa oft verið kallaðir Ford Problem þá held ég að það komi bara frá fólki sem keyrir sjálft um á gömlum Volvo og hefur ekki efni á betri bíl.
Þessi bíll fékk á sínum tíma mjög góða dóma og sagt var að ef Ford hefði haft hann afturhjóladrifinn þá hefði hann verið vinsælli en Mustanginn. Hann liggur allavega miklu betur en Mustang og bara mun skemmtilegri. (Ég er mjög mikill Mustang aðdáandi en þetta er staðreyndin)
Þannig að ég myndi bara fara vel með þennan bíl og njóta þess að eiga hann:)