eg er ekki endilega að leita mer eftir krafti heldur lookinu það eru allir á þessum hondum það er skemmtilegt að koma á svona bíl sem fáir unglingar eru á!!!
Veistu hvað er hægt að gera mikið fyrir Civicinn fá hann t.d hvítann og láta setja rúður í hann, fá rafmagns púst og ef þú ert að pæla í lookinu .. farðu þá út til usa og keiptu þér einhvern gamlann sportara og kíttaðu hann til og þá ertu með geðveikan bíl …. Svo er líka hægt að sér panta túrbó útgáfu af lancer … ef þú vilt skera þig úr …
BMW eru bilanagjarnir meira að segja nýju líka. Ég veit um einn gaur sem á nýjan BMW 2000cc og hann er búinn að vera bilaður í 1 og hálfan mánuð. B&L hafa klúðrar þrem sendingum í hann. Annnars held ég að þú ættir hvorugt að fá þér toyotu eða civic, vegna þess að toyotan er dýr og það er komið alltof mikið af civic á göturnar. Mæli með gamla corollu lookinu reyna að fá sér 3 dyra 1600, þeir virka betur en Si, veit ekki afhverju. Einn galli við civic hann er með of lítinn vatnskassa, og virkar á háum snúning þannig að ef þú ferð í þá pælingu að fá þér sérsmíðað asnalegt lokað nef á hann þá bræðirðu úr vélinni. punkturbasta. Fáðu þér lancer 92 - 95 lookið 1600. Þrusuvirka (miðað við 1600) ég er ekki að miða þá við camaro þó svo að maður gæti tekið hann í upptakinu uppísvona 40 kmh ;) “ef þeir eru þá sjálfskiptir”
Já, alveg nauðsynlegt að fá sér rúður, öryggisatriði sko. Svo verður manni líka kalt af því að keyra rúðulausan bíl..
Og rafmagnspúst, neistaflug og læti, og mengar heldur ekki umhverfið. Kemur nebbnilega enginn reykur.<br><br>HelgiPalli- ‘Insert Coffee for optimum performance’
Það er miklu meira úrval af kittum á Civic heldur en Corolla. Þannig að það ætti ekki að vera vandamál að setja flott look á Civicinn eins og margir hafa gert.
Hondurnar eru miklu hrárri bílar, hráir að innan, og ef þú klessir hondu þá fer hún í mask (trust me). Hinsvegar hefur toyota virkilega sannað gildi sitt hér á landi, ekki spurning, góðir bílar og góð þjónusta. Bilar aldrei :)
Ég skal flytja inn Toyotu Corollu G6 20V(1.6 20ventla VVT-i)165hö frá Suður Afríku, það er almennileg dolla, Ef þú vilt look kauptu þá BMW, það er allf fullt af þessum japönsku bílum á götunum, komdu svo til mín og við gerum Bimman SICK, Ég veit ekki, ekki kaupa samt svona kitaðan G6, þeir eru á djönk felgum og fáranlega kraftlausir.
Kia Shuma sko ;) Skemmtilegur bíll (keyri um á einum slikum) Og flottur.. og ódýr =) Anyways, persónulega myndi ég taka Civicinn, því mér finnst Corollan hrikalega ljót =)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..