Það vantar tilfinnanlega fleiri góðar greinar.
Það koma stundum inn greinar sem er ekki hægt að samþykkja. Þær eru þá of stuttar, illa unnar eða jafnvel teknar beint af öðrum vefjum.
Stofnendur Blýfótar voru mjög virkir notendur (og stjórnendur) hér á hugi/bilar og það hlýtur að muna um það að þeir fari og stofni sinn vef.
En maður kemur í manns stað og ég er viss um að það leynast hér afbragðspennar sem eiga bara eftir að spretta framá ritvöllinn.
Við erum ekki einir um rólegheit en mér sínist að margar vefsíður hafi hægt á sér, m.a. kvartmílan og BMW kraftur.
JHG