Einu sinni hélt ég að ég væri besti ökumaður í heimi (algjört ofmat á eigin getu eins og hjá flestum 17-18 ára ökumönnum).
Þó ég hafi ekki lent í árekstri í 12-13 ár og aldrei fengið sekt (fékk einu sinni stöðusekt sem ég fékk fellda niður eftir miklar bréfaskriftir) þá held ég að ég sé ekkert betri en hinir vitleysingarnir. Ég valdi því að ég væri í meðallagi.
Engu að síður tel ég mig miklu betri ökumann en flestir þeirra sem telja sig vera bestu ökumenn í heimi, þeir eiga eftir að læra….
JHG