Jahá, fær maður meira, hlutfallslega, í endursölu fyrir Avensis en BMW M3 E30? Ég held að það sýni ekki mikla vitneskju um efnið að þinni hálfu.
Langar þig að athuga hvað '87 Carina (forveri Avensis) kostar í samanburði við E30 M3 og athuga svo hvað Avensis og M3 kosta nýjir?
Grunnverð á nýjum Avensis er 2,35 millur. Nýr BMW M3 (E46) er því miður ekki gefinn upp á verðlistum B&L, en ég fann verðlista frá ágúst, þar sem hann var gefinn upp á 7,81 millu. Rúnnum það upp í 8 millur fyrir sanngirnissakir.
Ef ég fer á vef Bílgreinasambandsins og bið um viðmiðunarverð fyrir Toyota Carina, jafngamalli BMW M3 sem ég notaði til viðmiðunnar áður á þessum þræði, fæ ég upp viðmiðunarverðið 0 kr. Ég fann eina Carina sem er á réttum aldri (reyndar mun yngri en M3 E30 sem ég nota til viðmiðunnar) á www.bilasolur.is:
<a href="
http://www.bilasolur.is/Main.asp?FRAMLEIDANDI=TOYOTA&GERD=carina&ARGERD_FRA=1986&ARGERD_TIL=1991&EKINN=-1&FLOKKUR=-1&LITUR=-1&EAGE=&VERD_FRA=-1&VERD_TIL=-1&AHVILANDI_FRA=-1&AHVILANDI_TIL=-1&UTB_FRA=-1&UTB_TIL=-1&AFB_FRA=-1&AFB_TIL=-1&SHOW=SEARCHRESULTS&SEARCHTYPE=REGULAR&CCF=-1&CCT=-1&DSF=-1&DST=-1&BS7=on&BS19=on&BS1=on&BS30=on&BS36=on&BS32=on&BS9=on&BS33=on&BS40=on&BS10=on&BS23=on&BS27=on&BS13=on&BS43=on&BS2=on&BS22=on&BS5=on&BS12=on&BS4=on&BS31=on&BS38=on&BS29=on&BS0=on&BS16=on&BS26=on&BS17=on&BS3=on&BS35=on&BS6=on&BS37=on&BS21=on&BS34=on&BS28=on&BS24=on“>Tengill á notaða Carina</a>
Ásett verð fyrir þennan bíl, sem er ekinn 246þ. km og frá 1990, er 290þ. krónur, sem ég held að flestir samþykki að fáist aldrei fyrir hann. Enginn M3 fannst á þeim vef, svo að ef við athugum að það myndi kosta um 1,2 milljónir að flytja inn M3 sem ég benti á fyrr, getum við reiknað með að um 1 milljón sé líklegt verð á íslenskum markaði fyrir þokkalega gott eintak.
Ergó, hlutfallslegt verðfall BMW M3 er engu meira en Avensis/Carina. En það skiptir í rauninni engu máli, M3 E30 er orðinn það gamall að aldur skiptir nánast engu máli, hann er í raun hættur að falla í verði. Verðið á Carina lækkar mjög lítið þegar hún er orðin þetta gömul, ástand skiptir höfuðmáli.
Svo vill hins vegar brenna við að mjög dýrir bílar falla nokkuð hratt í verði fyrst um sinn. Þetta á við um aðra bíla en bara BMW.
Það að bera Yaris T-Sorp saman við M3 E30… tjah, ég þarf ekki einu sinni að skjóta á það, það dæmir sig sjálft.<br><br>-
”Most of the human race is stupid. Just look at their choice of beer.“ - mutant.
<font color=”white">FNORD</font