Beast1983: Dekkjastærðin hefur nú lítið með það að gera hversu létt er að velta bíl. En eins og stendur í greininni, þá standa rafhlöðurnar í bílnum allar á botnplötunni (undir “gólfinu”) og virka sem ballest (eru um 550kg). Bíllinn er því mjög stöðugur og veltur ekki fyrr en við 56° halla, sem er sambærilegt við Porsche 911.