°Vitið þið etthvað um camaro eyðir hann miklu er að hugsa um að flytja einn inn frá U.S.A var bara að pæla hvort það þyddi etthvað að vera á þannig bíl hérna á klakanum.
Ég er viss um að Stinni getur svarað þessu betur. Ég myndi giska að bíll með beinni innspýtingu myndi ekki eyða allt of miklu meðan þú keyrir eins og maður. Menntuð ágiskun væri á milli 10-15 ltr. innanbæjar, samt held ég frekar meira en minna. Ég myndi halda að þú gætir alveg notað Camaro hérna þótt að þú þyrftir örugglega að bíta vel á jaxlinn á verstu vetrardögunum.
ef þú ert á annað borð að spá í bensíneyðslu, þá held ég að þú ættir að fá þér eitthvað annað en 8cyl bíl. ekki neinir sparibaukar. á veturna eru þessir bílar stórhættulegir, en stórskemmtilegir líka! með rassgatið út í öllum beygjum og endalaust action..
Félagi minn á 6cyl Malibu og hann er búnað taka saman að líklega fari um 150þús kall í bensínkostnað í vetur + töluvert viðhald. Ég held að hann hafi talað um í kringum 15,16 lítra eyðslu en hann er náttúrulega boraður. En er Camaroinn tjónabíll?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..