Það er spurning hvað þú villt hafa þetta gott.
Ég hef gusað yfir bíla sem þurfa ekki að vera fullkomnir, og gert það ágætlega. Í fyrra gusaði ég yfir gamlann suzuki swift (var reyndar unnið í miklu tímahraki og hafði ekki tíma til að gera þetta eins og ég hefði viljað), en hann lítur ágætlega út ef hann er ekki skoðaður mjög nákvæmlega.
Ef ég vil fá bíl virkilega vel sprautaðann þá kemur ekkert annað til greina en að leita til fagmanna sem eru með allan þann búnað sem þarf (sérstaklega klefa sem hægt er að baka lakkið í).
Ég er þessa daganna að semja um sprautun á Transam. Mér datt ekki í hug eitt augnablik að gera það sjálfur inní skúr (þó ég gæti það), það verður aldrei eins vel gert.
JHG