Hún er ekki með rafmagni, heldur er svona hand-snerill þannig að opnunin er stiglaus frá 0 til ca 10 cm.
Það er frekar auðvelt að setja svona lúgu í, oftast er mesta mausið að mæla og staðsetja hana rétt og svo að fá toppklæðninguna til að falla vel að lúgunni, minnsta málið er að klippa gatið.
Ef þú ert með tau-topp-klæðningu þá er klæðningin felld nánast alveg að glerinu og þá verður þetta mjög líkt original lúgu að sjá.