jú, það er meiriháttar mál að fá varahluti í þennan bíl,
ég prófaði þennan bíl, (rauða) fyrir mörgum árum, þá var hann í toppstandi, á bílasölu, hann tók verulega skemmtilega í, og höndlaði vel, svo var ég að pæla í honum þegar hann var í þessu porti í firðinum, en þorði ekki að far út í þetta aðallega vegna þess að ég gat hvergi fundið varahluti,, (ég leitaði lengi) en sá sem áti hann þá er sá sami og gerði upp gula 911 Porsche'inn, hann er mjög vandvirkur þessi náungi, þannig að ef hann er að gera hann upp þá verða bílaáhugamenn ekki fyrir vonbrigðum.
Það var til annar svona bíll hérna, sá var grár, eldri en sá rauði, ég held að sá bíll sé í skúr einhversstaðar, í “uppgerslu”,, búinn að vera það í mjög mörg ár.
Þessi rauði lenti í slæmri útafkeyrslu fyrir mörgum árum, undirvagninn á honum fór í stöppu og það kostaði gríðarlega mikinn pening að laga það, (Jöfur var þá með umboðið)<br><br><b><font color=“red”>Speed is just a question of money. How fast can you go?</b></font