Ég átti nú svona bíl, ég veit ekki hvort þetta er gamli minn sem þú ert að spá í en það var mjög góður bíll. Hann var með Koni Sport fjöðrun, pústkerfi úr ryðfríu stáli og nýjum tölvukubbi. Það var mjög skemmtilegur bíll, upprunalega 150 hestöfl, nokkuð sprækur og mjög góður í beygjum með þessa fjöðrun. Kannski erfitt að verðleggja svona bíla en hann var mjög fallegur og skemmtilegur bíll, líka nokkuð sérstakur, bæði því hann var afmælisútgáfa og því hann verð með 16v vél sem ekki var framleitt mikið af.