K&N enn einu sinni.
Ég er með svona síur á tveimur af mínum bílum, sem báðir eru með létt tjúnaðar V8 vélar. Síurnar gera engin kraftaverk en eiga að skila mér einhverjum örfáum hrossum, en bílablöð hafa oft gefið það upp sem 5-15 hp á stærri vélum.
Ef þú ert með venjulegann fjölskyldubíl með litla vél þá mátt þú teljast heppinn ef þú nærð 5 hp. Líklegast finnur þú ekki muninn.
Ef sían sem er í bílnum er flöskuháls, og þú ert kominn með heitari ás, flækjur, opið púst og svoleiðis þá er hinsvegar líklegra að þú finnir mun. Ef bíllinn er óbreyttur þá hefur framleiðandi væntanlega miðað síuna við restina af kerfinu.
Aðalkostur þessara sía er að þær eru eilífðarsíur. Þú þarf að þrífa þær af og til og smyrja þær uppá nýtt (með þar til gerðri olíu) og þær munu endast bílinn.
JHG