NÆSTA FÖSTUDAG, 29. ÁGÚST VERÐUR SPL. GRÆJUKEPPNI OG SPYRNUKEPPNI ÆTLUÐ BÍLUM SEM EKKI HEFUR VERIÐ KEPPT Á Í KVARTMÍLU EF VEÐUR LEYFIR.
ÞETTA FER FRAM Á KVARTMÍLUBRAUTINNI Í KAPELLUHRAUNI OG HEFST KL. 19.00, EN KEPPENDUR VERÐA AÐ MÆTA 30 MÍNÚTUM FYRIR KEPPNI.
ÞETTA ER SAMVINNUVERKEFNI GRÆJUKLÚBBSINS OG KVARTMÍLUKLÚBBSINS EN MEGASPL MUN SJÁ UM SKIPULAGNINGU OG KYNNINGU.
SKRÁNING FER FRAM Á STAÐNUM.
SPYRNUKEPPNIN HEFST KL. 19.00 OG FER ÞANNIG FRAM AÐ MENN FÁ ÁKVEÐINN FJÖLDA FERÐA, SENNILEGA 3-4 FERÐIR, OG GILDIR BARA TÍMINN TIL VERÐLAUNA, ÞANNIG AÐ MENN GETA SKORAÐ Á HVERN SEM ER OG ÞAÐ SKIPTIR EKKI MÁLI HVERNIG VIÐUREIGNINAR FARA HELDUR BARA TÍMINN.
VERÐLAUN ERU VEITT Í 3 FLOKKUM Í SPYRNUKEPPNINNI:
4 CYL. 6 CYL. OG 8 CYL. EÐA FL.
Í GRÆJUKEPPNINNI VERÐUR KEPPT Í VENJULEGUM FLOKKUM SAMKVÆMT “ EMMA ” FLOKKASKIPTINGUNNI, OG SÖMU REGLUM OG VORU TD. Á AKUREYRI.
SÍÐAN ERU VEITT SÉRSTÖK VERÐLAUN FYRIR ÞANN BÍL SEM KEMUR BEST ÚT ÚR BÁÐUM KEPPNISGREINUM.
ÞETTA ER Í FYRSTA SKIPTIÐ SEM SLÍK KEPPNI ER HALDIN Á ÍSLANDI ( KANNSKI VÍÐAR ) OG GILDIR HÆSTA SPL. MÆLINGIN OG BESTI TÍMINN ÁN TILLITS TIL FLOKKA Í SPYRNU OG GRÆJUKEPPNUNUM.
ÞÁTTÖKUGJALD ER KR. 500,- Í HVORRI GREIN EÐA KR. 1000,- EF KEPPT ER Í BÁÐUM GREINUM.
AÐ KEPPNI OG VERÐLAUNAAFHENDINGU LOKINNI VERÐUR HÓPAKSTUR FRÁ KVARTMÍLUBRAUTINNI OG NIÐUR Í MIÐBÆ. ( Á LÖGLEGUM HRAÐA!!!! )
ALLIR ERU VELKOMNIR AÐ KOMA OG HORFA Á KEPPNINAR OG SKOÐA FLESTA FLOTTUSTU SPORT- OG GRÆJUBÍLA LANDSINS.
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS.
SIGURJÓN HEFUR YFIRUMSJÓN MEÐ KEPPNINNI.