Þetta er í raun ekki flókið. Þú þarft að stilla bilið á milli armsins og ventilsins. Ef það eru solid undirliftur þá þarft þú að mæla bilið og stilla það (mismunandi eftir því hvort bíllinn er kaldur eða heitur).
Ef hann er með vökvaundirliftur þá getur þú stillt þetta með vélina í gangi. Þá losar þú þangað til að þú heyrir hann glamra, herðir þangað til að hann hættir því og herðir svo 1/4 úr hring (að mig minnir, á við um small block chevy, ætti að vera svipað með aðra).
Það þarf enga atvinnumenn til að gera þetta, þú að útfærslur séu kannski mismunandi eftir tegundum.
JHG