Það virðist koma reglulega inn fyrirspurn um þessa bíla hérna, ég ráðlegg þér að framkvæma leit eftir Starion og skoða úrtakið.
Það voru að því best ég veit 2 týpur, 2.0 turbo (mjóa evróputýpan) og 2.4 turbo intercooler (ameríkutýpa með brettaútvíkkunum). Ég átti svona 2.4 bíl sem var '86 módel.
Þetta eru orðnir gamlir bílar og eintakið segir meira en eitthvað meðaltal bilana.
Minn bíll drakk nokkuð stíft, 14+ ef ég man rétt.
Gott ef 2.0 mótorinn var ekki kraftmeiri en stóribróðir, minn var ekki nema 140 hö í skráningarskíreininu á meðan 2.0 var í kringum 180 hö.