Sæll Ívar,
Nitro er notað bæði á Blöndungs bíla og Innspítingar bíla,
Ef það á að nota Nitro á Blöndung er vanalega notuð Nitro-plata ( hún er sett á milli blöndungs og millihedds ) og inná hana er tengt Nitro og leiðsla frá auka bensín dælu ( það þarf að setja meira bensín inná vélina til að nitroið skili tilætluðum árangri ).
Á innspítingar bílum er oftast notaðir Spíssar ( Fogger osfv ) spíssinn er vanalega settur í eða við throttel-boddyið ( T-B stýrir inngjöfini á bílnum// loft og bensín magni ) í innspítingar bílum þarf líka að auka bensín þrýstingin þegar Nitro er notað ( T.d með auka Dælu ).
( tekið skal framm að þessar upplýsingar miðast við 50-175hp nitro kitt, í stærri kittum eru töluvert meiri “Tricks” sem þarf að framkvæma til að ná tilætluðum árangri og til að sleppa með óskemmda vél )
Nitro í Turbo bíl er raunhæfur möguleiki, Turbo bíll er vanalega með frekar lága þjöppu þannig að Nitro er í lagi þar, Enn til að geta notað Nitro þarftu að geta aukið bensín magnið, Seinkað kveikjuni osfv, einnig er æskilegt að nota “Nitrous Controler” til að geta stillt lengd og styrk Nitro Skotana. ( ps: það er MIKIL fræði að fá Nitro og Turbo/blásara til að virka vel saman, og með því að seigja að virka saman þá á ég við “ Ekki með Ónýta vél eftir 2-3 skot ).
Nitro ”skemmir“ vélina þín það er eingin spurning ( 50-75hp skot eru ekki stór enn auka eftir sem áður slit vélarinar ) Ef nitro er notað á ”vitlausan" hátt þá er voðin vís fyrir vélina þína,þannig að ef þú ætlar að nota Nitro leitaðu þá til reyndra manna með ísetningu og Stillingu ( þetta er ekki eitthvað sem maður gerir sísona án nægilegrar þekkingar ).
Nitro getur þú fengið í bílabúð benna, ág mótorsport og fleirum,
Nitro kerfi eru ekki ódýr enn eru vel þess virði ef þú ert að leita að auka hestöflum fyrir lítin pening, Kerfi geta rokkað frá 50-200.000 ný enn það er hægt að fá þaug töluvert ódýrari notuð t.d á Ebaymotors.com, mundu bara að leita þér upplýsinga um hvaða kerfi hentar þínum bíl.
Góða skemmtun með Nítróið !!
Kv.
Dragon
Ps: And Remember BOTTELS ARE FOR BABIES….eða þannig :)
Pss: Ef þú hefur ekki þroska til að koma með vitsmunalegt svar við þessu svari slepptu því þá…..