Það fer eftir því hvaða módel af SLX þú ert að tala um.
SLX var til frá ‘91 - ’95. Árin ‘91 og ’92 var hann með GA16 vélinni, en árið ‘93 fékk hann beina innspýtingu, GA16DE.
SR bílinn kom hinsvegar ekki fram fyrr en ’93, hann hefur því alltaf verið með GA16DE vélinni.
Semsagt, SLX ‘93 og nýrri hefur sömu vél og SR.
GTI bílinn hefur auðvitað alltaf haft innspýtingu, kom fyrst ’91 og er með SR20DE í húddinu.