Rólegir á fullyrðingunum! Þeir taka það til sín sem eiga.
Ég bjóst ekki við svo miklu miðað við hvernig gamli accordinn var.
Ég fór og prufukeyrði báða bílana, sem sagt 2.0 og 2.4. Þetta eru hinu prýðisbílar. Sérstæklega 2.4 sem kom mér á óvart.
Mjög vel einangraður, solid í akstri, lookar +/-, þægileg sæti sem grípa mann í senn, mjög mikið af aukabúnaði og mjög sanngjörn verðálagning.
Prófaði svo mözduna seinna um daginn og var ekki næstum jafn hrifinn. Það er ekki spurning hvor hefði vinninginn.
Kemur vel til greina þegar fjölskyldan (ekki ég) fær sér næst bíl.