Bara svona til að þú fáir almennilegt svar!
Ef þú ætlar bara að bæta við bassaboxi þá þarftu fyrir utan það að vera með gott útvarpstæki helst með RCA tengi(cd spilari) og hátalara þá þarftu að fá þér Magnara sem getur keyrt keiluna almennilega, Þú þarft svo er ágætt að kaupa tilbúinn snúrupakka í t.d. Nesradio kostar um 4000-8000 kr fyrir 500-1500w græjur, í þeim eru raftmagnssnúra úr + á rafgeiminum í magnarann, öryggi, og aðra snúru í - á magnaranum og sætisbeltafestingu eða annarstaðar þar sem þú getur sett í “jörð” í bodyinu á bílnum, remote snúra úr útvarpinu í magnarann (snúran sem gerir þér kleift að hækka og lækka í keilunni með útvarpinu (samtengt hátölurunum)), og svo RCA snúran sem fer úr útvarpinu í magnarann. Svo er best að setja keiluna í box (kassa - ekki pappakassa!)
Semsagt
Útvarp (helst með RCA tengi - betra)
sirka 5 metra kapal úr + í rafgeimi í magnara
sirka 1 metra kapal úr - í magnara í sætisbeltafestinu “Jörð”
sirka 5 metra snúra remote í útvarp í magnara
sirka 5 metra RCA kapal úr útvarpi í magnarann
og svo hátalarasnúrur úr magnaranum í keiluna
svo mæli ég með því að setja allar keilur í box (mín persónuleg reynsla er að það sé um 5-10 sinnum betra að vera með keilu í boxi enn freeair og ég mæli með lokuðu boxi.)
Vona að þetta sé nógu skilmerkilegt svar!
Kveðja
Svessi
Gangi þér svo vel.