Ég hef fylgst með Farago um skeið. Það er ótrúlegt hvílíkum framförum hann hefur tekið á skömmum tíma, eða innan við 2 árum.
Hann er búinn að fínpússa hvað hann er “outrageous” og einfaldlega farinn að vera maður sem vegna sjálfstæðis síns þorir að segja hluti sem aðrir blaðamenn gætu seint sagt beint út.
Þegar ég hugsa til manna eins og Anthony ffrench-Constant hjá Car, þá er vonandi að Farago sé hin nýja gerð kjaftaska. Hann er svo miklu betri en hinn hræðilegi ffrench-Constant.
Ég geng svo langt að segja að ég vildi glaður sjá Farago á Evo í stað t.d. John Simisters og annarra sem hafa verið að freelanca þar. Gallinn væri að Farago þyrfti að minnka aðeins þennan brodd sem er svo skemmtilegur hjá honum.
Það er ekki auðvelt að vera bílaskríbent og kjaftaskur, margir reyna og gera lítið annað en fá mann til að kúgast, Farago fær ríspekt fyrir að gera þetta og gera það vel!<br><br>Viltu lesa meira af <a href="
http://thisgeeksworld.blogspot.com“target=”blank“>nöldrinu</a> mínu?
”I love the smell of Optimax in the morning…" - Richard Meaden, Evo #051