Bílablaðið sem ég er áskrifandi að, Evo, gerði rannsókn á þessu bensíni (reyndar er þetta breskt blað og þar selur Shell bensín sérhannað fyrir þann markað kallað Optimax) og niðurstöðurnar voru jákvæðar að mestu. Reyndar voru þeir ekki að dæla þessu á neinar innkaupakerrur heldur spræka bíla, eðalvagna og sportbíla.
Með niðurstöðugreininni fylgdu myndir innan úr vélunum, sem voru mjög áhugaverðar. Flestir bílarnir komu betur út með Optimax, sumir litlu betur eða engu, en á heildina litið virtist þetta skila sínu, með undantekningum.
Ef ég hefði almennilegan bíl myndi ég vafalaust prófa V-Power, en ég ætla að fóðra drusluna mína bara á því sem ég kemst upp með :)<br><br>Viltu lesa meira af <a href="
http://thisgeeksworld.blogspot.com“target=”blank“>nöldrinu</a> mínu?
”I love the smell of Optimax in the morning…" - Richard Meaden, Evo #051