Hugsanlega fer fólk minna inn á svona spurt & svarað kork, en þarf það að vera bara verra? Kostur gæti verið að það verði minna af svörum sem skipta í raun engu máli, ekki satt?
Það hefur alltaf viljað brenna við að það sé smá spam (ekki illa meint, MÉR líkar þannig bara vel ;) við spurningar, eða eitthvað af óskyldum svörum eða jafnvel út úr kú.
A.m.k. finnst mér umræður hverfa alltof hratt núna útaf fyrstu síðu og yfir á þá aðra í ótímabæran dauðdaga. Sjáið bara þennan kork, líklega verður hann kominn á bls.2 strax í dag!
Því meira sem ég hugsa um það held ég að besta skipting sé að hafa Umræður um bíla áfram að viðbættum Spurt & svarað í stað Akstursherma. Mér dettur ekkert betra í hug en Spurt & svarað og ég er viss um að það yrði lifandi korkur og Umræður um bíla yrðu það sömuleiðs áfram. Nema kannski um hásumar ;)
Annar kostur við Spurt & svarað er að skiptingin á korkunum er nokkuð skýr. Ef þið viljið sjá dæmi um óskýrt markaða korka og gallana við þá, kíkið bara á rokkáhugamálið. Blessuð sé minning mAlkAvs sem stjórnaði því með prýði, en því miður er Modern Times Rock'n'Roll korkurinn slæmur minnisvarði um hann.
Þeir sem eru áhugasamastir munu kíkja áfram á Spurt & svarað til að sjá hvað fólk er að pæla. Ég er líka viss um að bílabreytingaáhugafólk á eftir að verða sterkt á þeim kork. Ég er a.m.k. viss um að ég eigi eftir að kíkja þar reglulega og gefa fólki misviturleg ráð ;)
Því meira sem ég velti þessu fyrir mér, því betur líst mér á þessa breytingu. En komið samt endilega með ykkar álit, sérstaklega gagnrýni, því ég er greinilega kominn á þetta mál. Ég vil ómögulega að anað sé að einhverju sem síðan er ekki gott. Ekki vera feimin!<br><br>Viltu lesa meira af <a href="
http://thisgeeksworld.blogspot.com“target=”blank">nöldrinu</a> mínu?
* FIRST I MUST SPRINKLE YOU WITH FAIRY DUST *