Ég hef átt 1999 módel af Almeru GTi núna í rúm 2 ár. Hann er eitthvað um 1150 kg að þyngd. Mér finnst þetta þrælskemmtilegur bíll, hann virkar svolítið þungur, allavega miðað við gamla bílinn minn sem var Sunny. Hann er allavega töluvert meiri bíll en sunny-inn og meira solid. Það útskýrir eflaust þyngdarmuninn.
Þrátt fyrir að vera c.a 1150 kg, þá finnst mér hann vel sprækur.
Í þessi rúmu 2 ár sem ég hef átt hann hefur ekkert farið úrskeiðis, eina sem er að þessum bíl núna sem ég veit um er að afturrúðuþurrkumótorinn er orðinn hálfslappur. Annað er í topplagi, enda hafa þessir bílar þótt nokkuð bilanafríir og reliable almennt.