mitt verk er cadillac coupe deville 1980.
það getur vel verið að ég fari á hann næsta sumar.
kramið, body er tilbúið, mótor og skipting er alveg að vera til og svo er það bara skrautið (chrome dótið) sem er eftir.
var að skoða bíl í gær sem er með mjög heillegu chromi.
vélin er 501 c.in. (030 oversize stimplar), 4 hólfa blöndungur, 400 turbo skipting m/ overdrive.
þetta er 2ja dyra bíll, nýsprautaður dökkfjólublár m/ grófri sanseringu (perla) og hann verður kóngablár í sólinni, sami litur og lamborghini diablo.
á eftir að setja í hann 2fallt flowmaster pústkerfi undir hann, 2 1/2“, ekki flækjur í þennan bíl.
ég bjóst ekki við að komast á bílinn næsta sumar fyrr en ég sá spare-part bílinn, chrome er dýrt!
þessi bíll var dökkbrúnn, ryðgaður, ekki mjög fallegur með 472 c.in. mótor, chrome lista-laus og illa meðfarna innréttingu. var á götunni sumarið 2000 ef einhver kannast við hann.
ég stefni á að gera þennan bíl sem ”lowrider" seinna meir. þ.e.a.s. glussatjakkar og læti. vonandi verð ég fyrstur!
blackmoon