Rank viðkomandi segir ekkert til um getu hans. Það segir meira um hversu mikið hann hefur spilað svo að það væri heimskulegt að banna þá sem ekki væru Lance corporal ;)
Mér langar bara að vita hvaða rétt hinir og þessir hafa til að vera að banna ýmsa leikmenn annaðhvort útaf einhverjum tittlingaskít eða leiðindum. Hafa ekki allir sama rétt til að spila leikinn eða keyptu þessir sem eru að banna leikinn eitthvað dýrari en aðrir? Hversvegna eru þeir með rétt til að banna? Hvar fengu þeir hann? Hver í andskotanum stendur fyrir því að aðrir séu rétthærri í þessum leik en hinir?
Þeir sem eiga serverinn sem leikurinn er spilaður á áskilja sér rétt til að búa til reglur sem á að fara eftir á servernum. Til þess að framfylgja þessum reglum hafa þeir valið að sínu mati hæfa einstaklinga til að fara með völd til að banna og sparka út einstaklingum sem fara ekki eftir settum reglum.
Það eru þeir sem í andskotanum standa fyrir því að aðrir séu rétthærri í þessum leik en hinir… á ákveðnum serverum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..