Ég er þess nokkuð viss að téðri spurningu er best svarað með því að fara um víðan völl, vel spenntur og gíraður til undanhalds.
Góðir bikarar nýtast best fyrir humalvökva eða brennda drykki sem blandað er í sykraða bóludrykki og drukknir af drukknum drykkjumönnum í daufu skini endurvarps hins liðna tíma, sem gerð eru skil á öldum ljósvakans og dregið hafa margan góðan drenginn - og stúlkuna - til lags við Ljámann.
Þar sem orkan seytlar um díóður og kísilflögur og hitar upp tóma tilveru hins tvíræða og endanlega sannleika og þar sem bitar og bæti bítast um bitlinga í brautum og minnislekandi forskrift hins horfna tíma, má oft finna svarið að því sem spurt var að. Þó verður hver og einn að eiga það við sig hvernig hann túlkar téð svar, eða hvort svarið sé í raun spurning um það sem var, er og mun verða.
Það, vinur minn, er hin sanna viðurkenning.
0100100100100000011000010110110100100000010001000110000101110110011010010110010000100001