Þetta var mikil snilld og maður datt alveg i smá nostalgíu á tímabili :D
Stjáni tók upp gamla takta á skriðdrekanum og sópaði upp nokkrum stigum.
Ég tók upp gamla takta sem assault og sópaði nokkrum stigum til óvinanna. Svo reyndi ég að vera verkfræðingur, en skiptilykillinn var orðinn ryðgaður og jarðsprengjurnar stóðu á sér, þannig að það gekk ekki sem best heldur. Það eina sem virkaði ágætlega var exppacks, en þeir áttu það til að springa of fljótt fannst mér samt (eða í sumum tilfellum of seint). Þetta var ekki svona í denn - ég get svo svarið það :)
Svo mætti starfsmaður á plani, en eitthvað var enskan að flækjast fyrir honum, eða að minnsta kosti breyttist hann í “Employee in plane” og bombaði okkur í spað. Svo mjög að einhver útlendingsgrey sem höfðu álpast á serverinn fyrir misgáning öskruðu HAX! og fóru heim til sín í fýlu - sem var reyndar bara fínt mál :D
Spilarar sem maður man eftir svona í svipinn voru:
DEAD MAN WALKING (starfsmaður á plani)
ice · fúbú (ég er bara betri en þú)
I'm Robin
TnS Baldur (I'm Baldur)
Bulletproof
[89th]Zues (lol @ Zues)
saXi (stoppaði stutt)
Satan
Sitting duck (jors trúlí)
Svo var auðvitað fullt af góðum spilurum sem ég man ekki lengur - enda minnið orðið gloppótt þegar maður er kominn á þennan aldur :Þ Ég bið þá sem ég gleymi að nefna fyrirgefningar bara - það eru ekki þið, það er ég :S
Þetta var massastuð alveg, eigum við að ræða það eitthvað?
Ég læt pottþétt sjá mig aftur ef menn halda þessu eitthvað áfram.
Nokkur qoute frá því í gær:
“You have no skillz” (einhver útlendingur)
“Fucking lame hackers!!!” (sami útlendingur skömmu síðar - líklega verið drepinn greyið :)
“Veit einhver passann á serverinn?” (server admin)
"Ég sökkti carriernum.
Starfsmaður á plani [Zero] [89th]Zues
Ég hefði kannski ekki átt að skrifa þetta alveg strax“ (lol @ Zues)
”Ég er bara betri en þú“ (Sitting duck)
”Ég er bara betri en þú“ (ice · fúbú)
”" (I'm Robin - maður sem framkvæmir, en talar ekki bara um það :)
0100100100100000011000010110110100100000010001000110000101110110011010010110010000100001