Ég sé nú ekki alveg hvað þetta kemur Squads eða Lone Wolf við. Þú átt nú alveg að sjá vini jafn vel hvort sem þerir ert í squad eða ekki. Bara að leggja á minnið Blátt og grænt er vinsamlegt en rautt er óvinur. Ef þú ert ekki viss kíkja á minimappið vinirnir koma yfirleitt alltaf fram sem blár punktur :s
TK hinsvegar er hvimleitt fyrirbæri sem maður lendir stundum í, hvort sem það er að drepa liðsfélaga eða vera drepinn af einum slíkum. Svo lengi sem við spilum munum við lenda í þessum aðstæðum, fyrr eða síðar. Ef maður er svo óheppin að TK þá er eina leiðin að biðjast afsökunar og reyna að gera betur næst. Þegar maður lendir í því að vera drepinn af liðsfélaga þá er full ástæða til að staldra við og velta fyrir sér hvort þetta hafi verið viljandi eða óviljandi eða hvort maður hafi sjálfur gert eithvað sem orsakaði þetta. Ef TK er augljóslega villjaverk þá er sjálfsagt að trompast svoldið, berja á lyklaborði, grenja og væla og punisha fyrir verknaðinn ;) Ef maður á sjálfur sökina er málið að bíta í það súra epli og biðjast afsökunar. Ef TK er óviljaverk annars þá er einfaldast að velta sér ekki frekar uppúr því, velja forgive og halda áfram að spila.