Sá fáheyrði atburður gerðist í gær, að ég mætti í þetta tankblast í gær. Aberdeen var á server og ég spawna sem axis, næ tiger og tek suður flaggið, síðan austur, hoppa í miðju, næ vestur og síðan norður og að lokum tók ég einnig allied baseið. Allt þetta gerði ég einn míns liðs og var nokkuð stoltur af…. þangað til ég tók eftir því að ég var einn á server :I
En… ég vann þó roundið allavega :)
Hvað er þetta með ykkur strákar - er ekkert þol í ykkur að spila soldið frameftir eða hvað?
…að vísu fór ég á simnet í framhaldinu og spilaði þar eitthvað frameftir í staðinn, en ég var nú að vonast til að ná smá tankblastkvöldi… jæja vonandi næst bara :S
0100100100100000011000010110110100100000010001000110000101110110011010010110010000100001