Okay..
Sko, yfirleitt myndi ég ekki svara en fyrst ég er í svona jolly mood eitthvernvegin (og hef ekkert að gera á meðan ég downloada dóterí fyrir Flashpoint) þá ætla ég að segja þér hvernig þú færð hann aftur..
Fyrsta sem þú þarft að gera er að finna þér efni í búninginn sem mun vera Tjara, gular fjaðrir og bláann gogg.. mátt reyndar velja litin á fjöðrunum en goggurinn verður að vera blár!
þú ‘coverar’ þig í tjöruni og fiðrinu og setur gogginn á viðunandi stað (allir sem fengu ljótar og dónalegar hugsanir núna… skammist ykkar!) og hringir á leigubíl..
Á meðan þú bíður eftir bílnum farðu á netið og leitaðu að heimilisfangi Davíð Oddsonar.. þú ræður hvort það sé Sitting duck eða Fyrverandi forsætisráðherra*coughkonungur* Íslands.. svo lengi sem nafnið sé rétt..
Farðu í eldhúsið og fyndu til mjólk í kaffibrúsa
Á leiðini til Dabba skaltu gefa frá þér hljóð eins og rjúpa myndi gera ef hún væri að rembast við staur.. þetta er mjög mikilvægt.. notabene! failure to do so might cost your life..
Þegar þú ert kominn til Dabba, og eftir að hafa neitað að borga leigubílin þrisvar sinnum skaltu horfa í augun á bílstjóranum og segja eftirfarandi “Ég er minn eigins bókasafnsvörður handan við haf hins ósýnilega manns.” Svar hanns mun væntanlega vera “Farðu i rass og borgaðu!!” Yptu þá öxlum og borgaðu honum..
Hringdu á dyrabjölluni þangað til að Dabbi svarar.. Segðu við hann að þú þurfir að komast í skápinn hanns en bakvið alla skápa hjá Davíð oddsynum eru leinidyr sem liggja að annari veröld. Bankaðu 5 og 1/2 sinnum á dyrnar í skápnum og þar mun lítil rotta taka á móti þér.. Ekki loka hurðini!
Stígðu ofan á rottuna..
Ekki vera hræddur þótt hún bölvi dálítið, það er sárt að láta stappa ofan á sér.
Labbaðu inn í hina veröldina.. Labbaðu beint áfram.. Ekki líta á neina berbrjósta konu á leiðini! Þetta er crucial ef þú vilt lifa eðlilegu lífi því þetta eru ekki konur heldur eru þetta menn sem hafa gengist undir kynskipta aðgerð.. Og mundu.. allt sem þú gerir þarna mun birtast sem forsíðu grein í DV sem skandall..
Þú munt koma að helli.. Farðu inn í hellinn..
Þú munt hitta lítin og önugan dverg í leðurgalla sem mun ógna þér með heitri Bernaise sósu. Opnaðu brúsan þinn fljótt og heltu mjólkini framan í hann en þú færð væntanlega smá frest til að gera það vegna furðulegt útlit þitt (því furðulegri litir á fjöðrunum, því lengri tíma færðu). Þá munu tugir kettir koma og ráðast á dverginn og sleikja mjólkina en kettirnir eltu þig frá því að þú gólaðir eins og rjúpa, þess vegna er mikilvægt að þú lokir ekki hurðinni að veröldini, svo að þeir komist inn.
Þegar kettirnir hafa lokið sig af skaltu henda hnullungi ofan á hann (annars kemur hann aftur sem kattar Dvergur “CatDwarf” og þeir eru sko bitch að fást við..)
Farðu lengra inn og þar munt þú finna hann..
Labbaðu úr hellinum og beinustu leið til baka.. ekki horfa á brjóstin á köllunum.. þó þeir eru hot þá eru þeir kallar þarna niðri.. nema ef þú ert í svoleiðis dóti (if so then keep it to your self, mate)
Þakkaðu Dabba fyrir notkunina á skápnum.. og þú ert laus allra mála.. reddar þér bara heim aftur.. strætó er alltaf til staðar og alltaf holt líka að labba.
Ég vona að þetta hjálpi þér við að finna hann.
Nú er downloadið mitt komið og ég ætla að fara gera eitthvað sniðugt með það í flashpoint..
Kveðja
Jói
PS. ekki taka mark á stafsetningar villum.. Nenni einfaldlega ekki að fara yfir þetta allt saman á meðan Flashpoint bíður mín..