FUBAR, CP og 89th eru þau klön sem eru ef til vill aktívust í erlendum scrimmum þessa stundina, I'm hefur verið með þeim klönum sem hafa verið lengst í erlendum scrimmum. FUBAR, CP og 89th eru í opencup núna, I'm hefur verið í Opencup líka svo að það er ekkert nýtt. Annars er alveg vonlaust að ætla að fara dæma hvaða klan hefur mesta reynslu, þá þyrftum við að fá einhvern hlutlausan aðila til að taka saman alla leiki, mót, deildir og mæla eftir styrkleika o.s.fr.
Arkon, þetta er kannski stór fullyrðing að segja að I'm sé besta klanið, öll eru þetta mjög góð og skemmtileg klön sem hafa staðið sig mismunandi vel í mótum og scrimmum enda með mismunandi mannskap og leikaðferðir. En við ættum kannski ekki að dæma Arkon of harkalega fyrir að segja þetta þar sem líklega hver og einn einstaklingur í hverju klani fyrir sig hugsar slíkt hið sama, enda kemur svona hugsunarháttur manni áfram og veitir sjálfstraust og árangur.
Mutant, fjárhagsstaða leikmanna segir ekki til um hversu góðir þeir eru eða hversu góð klönin eru. I'm er mjög gott klan rétt eins og CP, Því miður fyrir leikmenn I'm klansins eru mót eins og skjálfti haldið á höfuðborgarsvæðinu og þar sem að I'm hefur mikinn hluta leikmanna staðsetta á Akureyri er erfitt og kostnaðarsamt fyrir leikmenn að koma og spila, fólk á mismunandi mikið af peningum sem það þarf að forgangsraða á mismunandi hátt.
Iceberg, ertu að segja mér það að um helmingur liðanna (FUBAR og CP) búi á Siglufirði eða í Vestmanneyjum, Það er meira en að segja það að flytja hálft lið frá Akureyri heldur en að fá einn og einn einstakling frá Siglufirði eða Vestmanneyjum, það er ekki hægt að bera þetta saman og þú veist það vel.
FUBAR er klan sem að hefur verið í miklum metum hjá mér síðan að það var stofnað, FUBAR ættu að vera fegnir því að ekki er hægt að dæma liðsheild eftir einstökum leikmönnum. Þar sem Mr.G er fullorðinn maður finnst mér hann hafa sýnt mjög barnslega hegðun þegar hann lýsir holdi leikmanna í BF samfélaginu á korki sem samfélagið notar. Þetta sýnir hversu sniðugur Mr.G er, þegar hann uppljóstrar á BF korknum að hann horfi á annarra manna typpi og mælir út þegar hann fer í sund, samkynhneigður ertu??? eða öfundsjúkur??? Reyndu að sýna smá andlegan þroska, þú ert á opnu spjallsvæði!
CP,FUBAR,I'M,89th öll góð klön með mismunandi góðum leikmönnum sem eru mismunandi góðir á tilteknum sviðum. Því miður hefur það alltaf verið þannig, hvar sem maður er staddur í lífinu, í vinnu, í skóla, í íþróttaliði, í klani … hvar sem er,,, þá er alltaf einn aðili sem þarf að draga niður ímyndina á bakvið “gott samfélag” með leiðinda hegðun og viðhorfi. Hver dæmir fyrir sig.